Inntaka fyrsta árið

Gert er ráð fyrir að í fyrstu umsóknarlotu verði teknir inn:

  • tveir einstaklingar af hverju fræðasviði Háskóla Íslands
  • þrír frá Háskólanum á Akureyri
  • einn frá Háskólanum á Hólum
  • einn frá Landbúnaðarháskóla Íslands.

Eftir það er gert ráð fyrir að færri verði teknir inn árlega.

Mat á umsóknum

Erlendur sérfræðingur mun halda námskeið í gerð umsókna, í samstarfi við innlenda sérfræðinga.

Utanaðkomandi matsmenn, innlendir sem erlendir sérfræðingar í háskólakennslu, munu meta umsóknir fyrsta árið og taka viðtöl við umsækjendur.

Framvegis verður mat umsókna síðan í höndum meðlima kennsluakademíunnar sjálfrar, með aðkomu sérfræðinga.

Umsóknarferli

Til að sækja um inngöngu í kennsluakademíuna skilar akademískur starfsmaður umsókn með upplýsingum um:

  • kennslusýn
  • kennsluþróunarverkefnum
  • dæmum um hvernig hann/hún/hán beitir fræðilegri nálgun við kennslu (Scholarship of teaching and learning) til þess að bæta kennslu

Umsækjendur þurfa að sýna fram á að þeir hafi með markvissum, faglegum og ígrunduðum hætti unnið að því að þróa eigin kennslu og tekið þátt í samtali um nám og kennslu.

Viðmið

Eftirfarandi eru drög að viðmiðum fyrir inngöngu í Kennsluakademíu opinberu háskólanna sem byggð eru á viðmiðum frá háskólunum í Lundi og Bergen.

Gert er ráð fyrir að kennsluakademían muni yfirfara viðmiðin og laga að íslenskum aðstæðum áður en aftur verður tekið inn í akademíuna:

1. Nemendamiðuð kennsla

  • Kennsla umsækjenda byggist á skýrri kennslusýn og þekkingu á því hvernig nemendur læra
  • Í kennslu sinni hugar umsækjandi að tengslum hæfniviðmiða, kennsluaðferða, námsmats og því hvernig nemendur læra
  • Samskipti umsækjanda við nemendur sína byggja á trausti, hann leitar eftir endurgjöf frá nemendum og bregst við henni á uppbyggilegan máta

2. Fagþekking – færni til þess að setja fagþekkingu fram í samhengi náms og kennslu

  • Umsækjandi notar viðurkenndar leiðir til þess að styðja nemendur við að takast á við sífellt flóknari verkefni og nýta þekkingu sína
  • Námsefni og kennsluaðferðir eru í samræmi við markmið námskeiðsins og námskrá

3. Skýr kennsluþróun til framtíðar – fagmennska í kennslu

  • Umsækjandi hefur skipulega unnið að því að bæta eigin kennslu, bæði hvað varðar efni og framsetningu