Kennsluakademía opinberu háskólanna í samstarfi við Kennslumiðstöð Háskóla Íslands halda árlega Kennsludaga vikuna 13.-20. mars næstkomandi.
Markmiðið er að efla samtal um mikilvægi kennslu og kennsluþróunar á háskólastigi.
Kennsludagar hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.
Kynnið ykkur spennandi og fjölbreytta dagskrá.