Kennsluakademía opinberu háskólanna í samstarfi við Kennslumiðstöð Háskóla Íslands halda árlega Kennsludaga vikuna 13.-20. mars næstkomandi.

Markmiðið er að efla samtal um mikilvægi kennslu og kennsluþróunar á háskólastigi.

Kennsludagar hefjast föstudaginn 13.mars og standa yfir í heila viku til föstudagsins, 20.mars þar sem opinberu háskólarnir skipuleggja opna og staðbundna viðburði á öllum sviðum HÍ og hinum opinberu skólunum.

Hér má sjá spennandi og fjölbreytta dagskrá sem í boði var á heimasíðu Háskóla Íslands.

Kennsludagar tókust afar vel og hér má sjá samantekt um dagana.