Hér má nálgast það sem þarf að vita til að sækja um í Kennsluakademíuna.
Stuðningur í umsóknarferli
Uppsetning á umsókn
Næstu kynningarfundir Kennsluakademíunnar fyrir inntökuferli árið 2026 verða haldnir 6.nóvember og 26. nóvember.
Hér er slóð á fundinn þann 6.nóvember
Félagar Kennsluakademíunnar eru akademískir starfsmenn við opinberu háskóla Íslands, nýir meðlimir eru teknir inn ár hvert.
Allir fastráðnir háskólakennarar (prófessorar, dósentar, lektorar og aðjunktar) sem starfa við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Landbúnaðarháskóla Íslands eða Háskólann á Hólum í 50% starfi eða meira.
Til að sækja um inngöngu í Kennsluakademíuna skilar akademískur starfsmaður ítarlegri umsókn á ensku, byggðri á viðmiðum Kennsluakademíunnar.
Öll gögn skal senda á netfang Kennsluakademíunnar (kennsluakademia@hi.is)
Mælt er með að umsækjendur taki þátt í þeim stuðningi sem Kennsluakademían býður umsækjendum upp á en auglýst verður námskeið sem aðstoðar við umsóknarskrif.
Hér má skrá sig í námskeiðið sem aðstoðar við umsóknarferlið. Skráningafrestur er til 8. janúar 2026.
Hér, á YouTube síðu Kennsluakademínnar má nálgast eldri kynningarfundi um umsóknarferlið